Þú ert hér

Veitingar

Veitingasalurinn í Heydal er opinn frá kl.8.00 til kl.24.00 á kvöldin yfir sumartímann. Gestamóttaka er staðsett í veitingasalnum. Veitingasalurinn er innréttaður þar sem áður var hlaðan á bænum. Veggir eru klæddir að innan með furu og kemur viðurinn frá Lettlandi.

Allur matur er borinn fram í veitingasalnum og við matargerð er notað hráefni úr heimabyggð sé þess kostur. Veitingasalan í Heydal er með vínveitingaleyfi.

Morgunverður er borinn fram frá kl.8.00 til kl.10.00. Morgunverðarhlaðborð að hætti hússins.
 
Hádegisverður er framreiddur eftir óskum frá kl.11.30 til kl.13.30.

Kvöldverður er framreiddur frá kl 18.00 til kl.22.00. Kvöldverður er valinn af sérréttarmatseðli Heydals.
Auk þess er hægt að kaupa kaffi. te, gos, ís og meðlæti allan daginn.

Fyrir hópa:

Hægt er að panta veitingar fyrir hópa.
Við bjóðum meðal annars upp á: Súpu, brauð, álegg , salat og smárétti í hádeginu.
Kaffihlaðborð
Kvöldverðarhlaðborð

 


Hópar vinsamlegast pantið fyrirfram í síma 4564824
Einnig er hægt er að panta með því að senda póst á heydalur@heydalur.is

 


Undirvalmynd

Veitingar

Þú ert hér: Forsíða or Veitingar

Aðgerðastika

Senda síðu Prenta síðu

Language

English