Þú ert hér

Í vötnum vakir silungur.


Í góðu veðri er freistandi að leggja land undir fót og ganga yfir í nágrannabyggðir. Lengri leið er yfir í Dýrafjörð. Reiðtúr inn í dalinn býður upp á gróðursæla náttúru og djúpa kyrrð. Unaðslegt er að róa á spegilsléttum sjónum og upplifa töframátt Drangajökuls sem gnæfir fannhvítur norðan fjarðarins. Eftir erfiði dagsins er gott að láta líða úr sér í heitum náttúrupotti.


Krökkt er af bláberjum, aðalbláberjum, aðalberjum og krækiberjum

Inni í dalnum er mikil grænmetisrækt. Þykir mörgum ótrúlegt að slíkt sé gerlegt á þessum slóðum.

Á haustin er í berjaárum mikil berjaspretta, krökkt er af bláberjum, aðalbláberjum, aðalberjum og krækiberjum.

Víða hefur verið hugað að skógrækt og hafa þegar verið gróðursettar um 100 þúsund skógarplöntur.

Í lundi fyrir ofan veginn skammt utan við bæinn er Hjalla og Pálmalundur. Pálmalundur er til minningar um Pálma Gíslason fyrrum formann Ungmennafélags Íslands og eiganda Heydals og Galtahryggs.


Undirvalmynd

Umhverfi

Þú ert hér: Forsíða or Umhverfi or Náttúra

Aðgerðastika

Senda síðu Prenta síðu

Language

English