Þú ert hér

Umhverfi

Heydalur er 6 km langur dalur sem gengur inn úr Mjóafirði.Um hann liðast Heydalsá. Munnmælasögur herma að í dalnum hafi búið 12 bændur og einn klerkur. Þekkt eru ein sjö bæjarnöfn. Byggingarlag tveggja bæjarrústa sem fundist hafa í Heydal  þ. e.  Kirkjubóls og Brennistaða benda til að þær séu frá fyrir 1100. Fjölbreytilegur gróður og kjarr er í dalnum. Á leið inn dalinn má finna plöntuskilti sem greina frá plöntum sem á vegi verða lækningamátt þeirra og fleira.  Alls eru í dalnum um 112 plöntutegundir auk grastegunda.  Sjaldgæfasta plantan er skógelfting. Í dalnum eru um 10 gil. Stórfenglegust eru Bæjargilið og gilið innst í farvegi Þverár, sem er þverá sem rennur í Heydalsá. Þar eru berggangarnir mjög sýnilegir en berggangar myndast þegar kvika storknar í sprungum og eru því yngri en bergið í kring. Berggangarnir dragast svo saman frá grannberginu þegar þeir kólna og standa sem sjálfstæðir drangar. Í ánni eru skemmtilegir hylir og smáfossar. Síðsumars má sjá lax og sjóbirting á leið upp ána. Innst í farvegi Þverár eru margir smáfossar hver upp af öðrum, einskonar fossastigi ,sem áin hefur sorfið í mishörð lög, blágrýtislög og gjóskulög á víxl. Í árfarvegi Heydalsár, áður en hún sameinast Þverá, er sérkennileg stuðlabergsbrú. Enn ein tegund af berggangi í þetta sinn lárrétt.

Á vorin er fjölbreytt fuglalíf. Krían er hávær í varplandi sínu við ströndina. Konungur fuglanna, örninn, er á sveimi og verpir öðru hverju í nágenninu. Straumendur synda á ánni, lómur í firðinum og himbrimi á vötnum. Lóan syngur sitt dirrindi og rjúpa, þröstur, sólskríkja og fleiri smáfuglar hreiðra um sig í kjarri og vötnum. Fálki og smyrill eru skammt undan. Finna má spjöld, með fuglum dalsins, staðsett á viðeigandi stöðum.

Í góðu veðri er freistandi að leggja land undir fót og ganga yfir í nágrannabyggðir. Sjá nánar um gönguleiðir. Reiðtúr inn í dalinn býður upp á gróðursæla náttúru og djúpa kyrrð. Unaðslegt er að róa á spegilsléttum sjónum og upplifa töframátt Drangajökuls sem gnæfir fannhvítur norðan fjarðarins. Eftir erfiði dagsins er gott að láta líða úr sér í heitri laug.

Inni í dalnum er mikil grænmetisrækt. Þykir mörgum ótrúlegt að slíkt sé gerlegt á þessum slóðum.

Á haustin er í berjaárum mikil berjaspretta, krökkt er af bláberjum, aðalbláberjum, aðalberjum og krækiberjum.

Víða hefur verið hugað að skógrækt og hafa þegar verið gróðursettar yfir 100 þúsund skógarplöntur.

Í lundi fyrir ofan veginn skammt utan við bæinn er Hjalla og Pálmalundur. Pálmalundur er til minningar um Pálma Gíslason fyrrum formann Ungmennafélags Íslands og eiganda Heydals og Galtahryggs. Þar er Gígjasteinn sem Elínus taldi margra mannhæða háan. Á þann stein hefur verið settur minningarskjöldur um Pálma. Í lundinn voru gróðursettar 500 skógarplöntur sem nemendur Hjallaskóla færðu Stellu Guðmundsdóttur í tilefni af 60 afmæli hennar 2001. Vinir og vandamenn hafa margir gróðursett tré í lundinn í minningu Pálma.


 

Áhugaverðir skoðunarstaðir í nágrenni hótelsins.


Pálmalundur
Pálma og Hjallalundur er minningarlundur um Pálma Gíslason fyrrum formann Ungmennafélag Íslands og einn af eigendum Galtahryggs og Heydals. Pálmi var mikill umhverfissinni og áhugamaður um skógrækt, fiskirækt og náttúruskoðun.

Lundurinn er staðsettur fyrir ofan veginn skammt utan við bæinn hjá Gýgjusteini sem Elínus ,fyrrum bóndi í Heydal, taldi margra mannhæða háan. Þegar Stella Guðmundsdóttir, kona Pálma, varð 60 ára færðu nemendur Hjallaskóla henni 500 skógarplöntur. Pálmi hafði valið lundinn til gróðursetningar áður en hann féll frá. Ýmsir góðir vinir hafa gróðursett í lundinn í minningu Pálma.


Vatnsfjörður
c.a. 20 km frá Heydal.
Vatnsfjörður er fornt höfuðból Vatnsfirðinga. Líklegt er talið að kirkja hafi staðið hér frá um 1100. Núverandi steinsteypt kirkja, teiknuð af Rögnvaldi Ólafssyni var reist 1911 – 1912. Margir merkir munir úr kirkjunni eru varðveittir á Þjóðminjasafni.

Af merkum ábúendum má nefna Þorbjörgu digru, systur Kjartans Ólafssonar og konu Vermundar mjóva. Hún sá til þess að Grettir héldi lífi eftir að hann hafði verið handtekinn og til stóð að hengja hann, Þorvald Vatnsfirðing Snorrason (d. 1228) sem drap merkismanninn, Hrafn Sveinbjarnarson á Eyri í Arnarfirði, Björn Jórsalafara sem um 1400 ferðaðist til Jerúsalem, Kristínu dóttur hans sem þótti mikill skörungur og var móðir Björns hirðstjóra Þorleifssonar sem Englendingar drápu á Rifi, sr. Hjalta Þorsteinsson (d. 1745), fjölhæfan listamann en eftir hann liggja ýmsar altaristöflur, trélistaverk og myndir af ýmsum merkum samtíðarmönnum.

Undanfarin sumur hafa fornleifafræðingar unnið að forvitnilegum uppgreftri í Vatnsfirði og eru þeir reiðubúnir að segja ferðamönnum frá því sem þeir hafa orðið vísari.


Reykjanes ca. 30 km frá Heydal
Sundlaug, ferðaþjónusta og gamall héraðsskóli.


Kaldalón
ca.. 100 km frá Heydal
Áhugavert er að ganga inn að Drangajökli.


Seleyri
Minnismerki um Sigvalda Kaldalóns, lækni og tónskáld, sem bjó að Ármúla.


Hólmavík
ca. 110 km frá Heydal
Galdrasýning segir frá þjóðtrú og sögu 17.aldar. Þar má kynnast uppvakningum, tilberum, nábrókum og fleiri spennandi fyrirbærum. Einnig er skýrt frá galdrabrennum og refsingum.
Opnunartími frá 1.06 til 15.09 frá 10 – 18. Á öðrum tímum eftir samkomulagi.


Klúka í Bjarnafirði
ca. 110 km frá Heydal
Kotbýli kuklarans á Klúku sýnir hvernig lægstu stéttir landsins bjuggu, hugarheim þeirra og til hvaða ráða gripið var í lífsbaráttunni. Safnið er opið 15.06 til 31.06 og 16.08 til 31.08 frá kl.12 - 18. og 1.07 til 15. 08 frá kl. 10- 18

Gvendarlaug hins góða.


Sauðfjársetur í Sævangi
Þar er fjallað um sauðfjárbúskap fyrr og nú. Safnið er opið 1.06 til 31.08 frá kl. 10 – 18.


Drangsnes – Grímsey á Steingrímsfirði
Pottaþyrping við sæ – stærsta lundabyggð á Íslandi.Siglingar með leiðsögn út í eyna frá Drangsnesi.


Vigur, Hesteyri, Æðey og Grunnavík
Ef um hóp er að ræða má athuga möguleikann á að panta siglingu frá Ögri. Annars eru skipulagðar ferðir frá Ísafirði og Bolungarvík.


Ögur,
fornt stórbýli og höfðingjasetur. Kirkju er þar getið í kirknatali Páls Jónssonar. Núverandi kirkja var reist 1859. Merkir munir úr henni eru varðveittir á Þjóðminjasafni. Þekktustu ábúendur eru Magnús prúði Jónsson, sýslumaður og sonur hans Ari Magnússon, sýslumaður, sem lét drepa skipreka Baska 1615.


Litlibær í Skötufirði
ca. 60 km frá Heydal
Bygging frá 1895. Tvær fjölskyldur bjuggu í bæ sem var aðeins 3,9 x 7,4 m². Þjóðminjasafn Íslands sér um endurbyggingu. Leiðsögn frá Hvítanesi.


Hvítanes
einstakur staður til selaskoðunar.


Raggagarður í Súðavík
ca.119 km frá Heydal.
Skemmtilegur fjölskyldugarður sem hefur það hlutverk að efla útiveru og hreyfingu og stuðla að ánægjulegri samveru foreldra og barna. Garðurinn er reistur til minningar um Ragnar Frey Vestfjörð sem lést 17 ára gamall í bílslysi í Súðavík 2001.


Melrakkasetur í Súðavík.
Í bígerð er að opna það 12.júní.

Ísafjörður – í byggð frá landnámsöld. gömlu húsin , elsta húsaþyrping á landinu frá 18. öld, sjóminjasafnið.Faktorshúsið, gamla sjúkrahúsið núverandi bókasafn, Edinborgarhúsið. Götur með húsum frá 19.öld og byrjun 20.aldar. Merkir stjórnmála og athafnamenn. Ein  besta höfn landsins frá náttúrunnar hendi.

Ósvör – verbúðir og útræði sem líkast því sem var á tímum árabátaútgerðar.



Undirvalmynd

Umhverfi

Þú ert hér: Forsíða or Umhverfi

Aðgerðastika

Senda síðu Prenta síðu

Language

English