Sveitahótel
Í boði eru átta tveggja manna og eitt þriggja manna herbergi með salerni og sturtu sem innréttuð hafa verið í hlöðu og fjósi. Gengið er inn í hvert herbergi utan frá. Í hverju herbergi eru sjónvarp, tvö vönduð rúm, náttborð, borð, fatahengi, tveir stólar og hitakanna. Í veitingasal er boðið upp á ljúffenga rétti. Sjá nánar um veitingar.