Gisting á Vestfjörðum
Opið: Allt árið. Á veturna þarf að panta fyrirfram.
Heydalur, ævintýradalurinn í Djúpinu. Gisting í 8 x 2ja manna og 1 x 3ja manna herbergjum með baði og sjónvarpi.
Gengið er í hvert herbergi utanfrá.
Einnig sumarhús til leigu.
Veitingar eru í glæsilegum sal.
Fjölbreytt afþreying er í boði. Sjá nánar afþreyingu.
Gestgjafar eru Stella Guðmundsdóttir og Gísli Pálmason.
Heydalur er við veg 633.