Vetrarafþreying
Gönguskíði
Þegar nægur snjór er eru lagðar göngubrautir fyrir gönguskíði inn dalinn. Skemmtileg leið.
Dorgveiði
Boðið er upp á dorgveiði í fjallavötnum. Um er að ræða ferð með snjósleðum í vötn sem eru í um 5-6 km fjarlægð frá bænum. Eitt vatn með mjög vænum bleikjum (3-6 pund) og annað vatn með vænum urriðum. Í fallegu veðri eru þetta ógleymanlegar ferðir með ævintýrablæ.
Sé snjór ekki nægur en vötn frosin er boðið upp á jeppaferðir í dorgveiði.