Þú ert hér

Plöntur í Heydal.


Mjög fjölbreytt plöntuúrval er í Heydal enda dalurinn allur kjarri vaxinn milli fjalls og fjöru. Birkiskógurinn í innri hluta dalsins er friðaður. Sjaldgæfasta plantan er skógelfting innst í dalnum. Talið er að hún hafi hjarað af jökulskeið ísaldarinnar. Hún vex aðeins í Ingólfsfirði og við Gerpi auk Heydals.
Margar skógarplöntur hafa verið gróðursettar í samvinnu við Skjólskóga á svæðinu frá sjó að bænum.

Unnið er að niðursetningu gróðurskilta meðfram göngustígum þar sem plöntum, sem vaxa á tilteknum stöðum, er lýst og greint frá notkun þeirra til lækninga, litunar o.s.frv.

Heydalsbændur hafa einnig verið iðnir við að rækta grænmeti bæði heima við bæinn og inni í dal.

Afþreying

Þú ert hér: Forsíða or Afþreying or Plöntuskoðun

Aðgerðastika

Senda síðu Prenta síðu

Language

English