Þú ert hér

Kajakleiga


 

Róið er í Mjóafirði. Átta kajakar eru til leigu með eða án leiðsagnar.
Mjóifjörður er vel til kajaksiglinga fallinn og útsýni fagurt út fjörðinn norður að Drangajökli.

Vinsamlegast athugið að panta fyrirfram.

Klukkustundar ferð:
Hægt er að leigja kajak með leiðsögn í klukkutíma.
Farið úr fjörunni í Heydal.
Verð pr. klst. 3000 kr.

Styttri ferð:
Farið er frá Látrum og róið kringum selalátur.
Ekið er að Látrum og aftur til baka.
Lengd ferðar: ca. 2 1/2 klst.
Innifalið: Kajak og viðeigandi búnaður, leiðsögn, akstur
Brottför kl. 8.00 eða eftir samkomulagi.
Verð: 5.000.kr. pr. mann. Lágmark tveir í ferð.
10 % afsláttur ef fleiri en fimm eru í ferð.

Lengri ferð:
Róið er frá Látrum fram hjá selalátri. Stundum sjást hvalir og fuglar eru á sveimi. Komið er í land og nesti snætt. Bíll fylgir alla leið. Í lok ferðar er farið í heitan pott.
Lengd ferðar: ca. 5 klst.
Innifalið: Nesti, kajak og viðeigandi búnaður, leiðsögn, heitur pottur.
Brottför kl. 8.00 eða eftir samkomulagi.
Verð: 11.000 kr. pr. mann. Lágmark tveir í ferð.
10% afsláttur ef fleiri en fimm eru í ferð.

Gott er að láta líða úr sér eftir kajakferðirnar og standa pottarnir í Heydal ferðalöngum til boða.


4500 kr 4 klst án leiðsagnar.

7000 kr dagurinn án leiðsagnar.

Athugið: Allar ferðir eru á eigin ábyrgð.

Afþreying

Þú ert hér: Forsíða or Afþreying or Kajakferðir

Aðgerðastika

Senda síðu Prenta síðu

Language

English German French