Þú ert hér

Heitir pottar



Í Heydal og nágrenni eru heitar laugar, pottar og sundlaug. Það er náttúrulaug á Galtarhrygg .Sagt er að Guðmundur góði hafi vígt hana. Sögusagnir herma að fólk með ýmsa krankleika hafi talið laugarbað í Galtarhryggslaug  veita sér bót meina.Tvívegis hefur verið borað eftir heitu vatni með góðum árangri í Heydal. Fjárhúsi var breytt í gróðurhús með suðrænum gróðri og þar er sundlaug og heitur pottur.Utan dyra eru þrír pottar með nýstárlegu sniði "Onsen" pottar unnir úr fjörugrjóti og skeljasandi.
Áfram er unnið að þróun þessa einstaka baðsvæðis í samvinnu við Vatnavini.
Í Hörgshlíð er stór manngerður pottur við sjóinn.

Afþreying

Þú ert hér: Forsíða or Afþreying or Heitir pottar

Aðgerðastika

Senda síðu Prenta síðu

Language

English