Þú ert hér

Gönguferðir

 

Gönguleiðir:
Gönguferð inn Heydal.
Gönguferð úr Húsadal niður í Heydal.
Gönguferð upp á Eyrarfjall.
Gönguferð upp að Selvatni.
Gönguferð úr Skötufirði yfir í Heydal.
Gönguferð úr Laugadal yfir í Heydal.
Gönguferð úr Dýrafirði yfir í Heydal.

Skemmtileg gönguleið er inn Heydal meðfram Heydalsá .Sjá nánar undir "Umhverfi".
Upp á Eyrarfjall er akvegur sem er ekki lengur í notkun.
Upp frá Hörgshlíð er mjög torfarinn akvegur upp að Selvatni.

Gamlar gönguleiðir eru úr Heydal yfir í Skötufjörð (5-6 tíma ganga), Laugadal (4-5 tíma ganga) og Dýrafjörð. Unnið er að því að stika þessar leiðir eftir því sem tími gefst. Ef fólk óskar er í boði að aka því á göngustað og skilja bílinn eftir á áfangastað í Heydal.


Göngu og veiðiferð með leiðsögn að Ausuvatni:
Brottför kl. 9.00 eða eftir samkomulagi.
Lengd ferðar 5-6 klst.
Innifalið: Leiðsögn, nesti, veiðileyfi, veiðistangir.
Verð 8.000 kr. pr. mann. Lágmark 2 í ferð.
Tilboð fyrir hópa.

Vinsamlegast pantið fyrirfram.



Afþreying

Þú ert hér: Forsíða or Afþreying or Gönguferðir

Aðgerðastika

Senda síðu Prenta síðu

Language

English