Fuglar í Heydal
.
Mikið fuglalíf er í Heydal,spörfuglar, vaðfuglar,
endur og ránfuglar. Komið hefur verið upp skiltum
með fuglategundunum í Heydal, alls 43 tegundum.
Þrjú skilti eru staðsett niðri í fjöru, þrjú skilti við
hótelið og tvö skilti á tjaldsvæði við Heydalsá.
Nálgast má gátlista á hótelinu og merkja við þá fugla
sem fyrir augu ber.