Þú ert hér

Panta gistingu

Vorfagnaður 2012

Vorfagnaður í Heydal Laugardaginn 5. maí heldur Kvenfélagið Sunna sinn árlega vorfagnað í Heydal. Húsið opnar kl 20.00 Að venju fá gestir kaffi og heimabakað meðlæti og ekki má gleyma hinu vinsæla bögglahappdrætti. Þórunn og Halli munu halda uppi fjörinu til klukkan 03. Í tilefni vorfagnaðarins er boðið upp á gistingu í tveggja manna herbergi með baði á 3600 kr. á mann. Vinsamlegast pantið gistingu í síma 456 4824 eða á netinu heydalur@heydalur.is Ferðaþjónustan í Heydal fékk hvatningaverðlaun Ferðaþjónustu bænda 2011 ásamt Friðheimum við Reykholt og Fögruhlíð í Fljótshlíð. Verðlaunin eru veitt fyrir einstaka og vel útfærða hugmynd og frumkvæði að uppbyggingu í ferðaþjónustu. Munið eftir gjafabréfunum vinsælu spyrjist fyrir í síma 4564824 eða á netinu

Language

English German French